Dimmalimm
Markmið: Þjálfast í athygli og eftirtekt. Læra talnagildi.
Fjöldi leikmanna: 4+
Aldur: 4+
Gögn: Engin
Lýsing: Leikurinn snýst um að einn er Dimmalimm og snýr hann baki í alla hina leikmennina. Sá sem er Dimmalimm telur upphátt “1,2,3,4,5, Dimmalimm” og snýr sér þá við. Áður en hann snýr sér við verða allir hinir að frjósa í þeirri stöðu sem þeir eru. Dimmalimm sendir þá sem hreyfa sig aftur til baka. Leikurinn gengur þangað til einn kemur að Dimmalimm og klukkar hann. Þá eiga allir að hlaupa til baka og Dimmalimm reynir að klukka þá. Sá sem er klukkaður fyrst verður Dimmalimm í næstu umferð.