Leikir
Leikur er ein meginnámsleið barna. Börnin dragast að leik því hann er þeim eðlislægur. Leikur barna einkennist gjarnan af gleði og ánægju en í gegnum leik má einnig kenna börnum margt. Margir af þeim leikjum sem við höfum lært í gegnum tíðina vinna beint með stærðfræðihugtök eða vinna með hana á annan hátt. Hér koma nokkrir af þeim leikjum sem okkur finnst standa uppúr í þessum efnum.