Lausnaleit
Öll börn geta leyst vandamál en mismunandi er hvaða aðferðir þau nota til þess. Lausnaleit er mikilvægur undirflokkur stærðfræðinnar og nauðsynlegt að börnum gefist tækifræri á að þjálfa sig í honum. Verkefni sem þjálfa lausnaleit geta t.d. verið að skipta jafnt á milli barna, skiptast á eða leysa úr ágreiningi.