Spil
Að spila eru eitthvað sem mörgum börnum og fullorðnum finnst skemmtilegt að gera. Börn læra ýmislegt þegar þau spila. Þau læra að fylgja reglum, skiptast á, að tapa og að vinna. Einnig þjálfast þau í samskiptum þar sem spil eru venjulega þannig að það þarf a.m.k. tvo til að spila. Það fer svo eftir því hvaða spil verður fyrir valinu hverju sinni hvaða atriði börnin eru að æfa, en það fer venjulega framhjá þeim því spilið er í þeirra huga eingöngu leikur og þannig tengja þau ekki leikinn við stærðfræði þó hún síist inn í huga þeirra ómeðvitað. Hér koma nokkur af þeim spilum sem okkur þykja skemmtileg og tilvalin til að ýta undir stærðfræðiskilning ungra barna.