Hvað er klukkan gamli refur?
Markmið: Auka talnaskilning. Þjálfa hugtök: hærra og lægra
Fjöldi leikmanna: 3+
Aldur: 4+
Gögn: Engin
Lýsing: Einn er refurinn en hinir lömbin. Refurinn er í einu horni rýmisins og snýr baki í lömbin. Lömbin eða stjórnandinn ákveða hvað klukkan sé og fara svo til refsins og spyrja „hvað er klukkan gamli refur?“ Refurinn snýr sér þá við og byrjar að giska. Lömbin standa kyrr á meðan en svara með já eða nei þegar hann giskar. Refurinn giskar þar til hann hittir á réttan tíma og þá reyna lömbin að hlaupa til baka og refurinn reynir að klukka þau. Þau sem eru klukkuð breytast í refi. Hin lömbin ákveða nýjan tíma og byrja uppá nýtt. Lömbin mega gefa vísbendingar eins og t.d. segja að klukkan sé meira eða minna, að talan sé hærri eða lægri
http://mennta.hi.is/vefir/stae/staerdfraedileikir/hva%C3%B0_er_klukkan_gamli_refur.htm