Tvenna
Markmið: Þjálfast í athygli og eftirtekt. Þjálfast í rúmfræði.
Fjöldi leikmanna: 2-8
Aldur: 5+
Gögn: Spilið Tvenna
Lýsing: Tvenna (e.Dobble) er spil með 55 spjöldum. Á spilunum eru átta myndir og snýst spilið um að finna hvaða myndir eru eins á spilunum. Það er hægt að spila nokkrar útgáfur af Tvennu en aðallega eru spilaðar tvær útgáfur með leikskólabörnum.
Fyrsta útgáfan snýst um að losna við öll spilin sín. Þá er byrjað á að setja eitt spil á borðið og snýr spilið upp, síðan er bunkanaum skipt jafnt á milli leikmanna. Þegar spilið byrjar kíkja allir leikmenn á fyrsta spilið sitt á sama tíma og reyna að vera fyrstir til að finna einhverja mynd sem er eins á sínu spjaldi og því sem er efst á borðinu. Þegar það tekst verður maður a segja hvaða mynd er eins og setja svo spilið sitt ofan á bunkann. Þannig heldur spilið áfram þangað til einn leikmanna er búinn að losa sig við öll spilin og vinnnur hann spilið. Ef fleiri en tveir eru að spila saman er hægt að spila upp á annað sætið og svo framvegis.
Hin útgáfan er andstæðan við fyrstu útgáfuna en þá á að reyna að safna eins mörgum spilum og mögulegt er. Í þessu spili fá allir eitt spil og síðan eru öll hin spilin í einum bunka í miðjunni. Þegar maður finnur samstæðu tekur maður spilið úr bunkanum og það verður nýja spilið manns. Þegar bunkinn er búinn telja allir spilin sín og sá sem er með flest spil endar sem sigurvegari.