Ólsen Ólsen
Markmið: Læra að þekkja form (rúmfræði) og talnagildi.
Fjöldi leikmanna: 2-5
Aldur: 4+
Gögn: Spilastokkur
Lýsing: Hver leikmaður fær fimm spil á hendi. Eitt spil er lagt þannig að það snýr upp og restin í bunka á hvolfi við hliðina á. Markmiðið er að losna við öll spil af hendi. Þegar þú átt leik máttu velja hvort þú setur út spil af sömu tegund, t.d. ef það er tígul sjöa út þá máttu setja annan tígul eða eins margar sjöur og þú vilt. Ein undantekning er á þessu því átturnar eru gæddar kröftum og þær er hægt að nota til að breyta um tegund eins og frá laufi yfir í hjarta o.s.frv. Áttan þarf ekki að vera í réttri tegund þær virka ofan á öll spil. Ef þú átt ekkert spil sem passar þá máttu draga að hámarki þrjú spil, eitt í einu, þar til þú hefur dregið annað hvort þrjú spil eða spil sem þú getur notað. Ef ekkert þeirra passar segir leikmaður „pass". Þegar leikmaður á eitt spil eftir verður hann að segja „ólsen” svo allir heyri. Ef hann gleymir því og næsti er búinn að gera þá þarf hann að draga þrjú spil í refsingu. Þegar leikmaður leggur svo út seinasta spilið sitt segir hann „Ólsen ólsen” og hefur þar með unnið spilið.