Svarti Pétur
Markmið: Læra að para saman myndir eða tölur (flokkun).
Fjöldi leikmanna: 2 - 4
Aldur: 4+
Gögn: Spilastokkur eða sérstakt Svarti Pétur spil.
Lýsing: Spilastokknum er skipt jafnt á milli allra leikmanna, eitt spil í einu. Ef venjulegur spilastokkur er notaður er laufagosinn tekinn út og spaðagosinn er Svarti Pétur. Leikmenn byrja á því að skoða spilin sem þeir eru með á hendi og finna eins margar samstæður og þau geta og leggja þær niður á borð. Samstæða er tvö eins spil eða sami litur með sama talnagildi ef notaður er venjulegur spilastokkur. Sá sem er vinstra megin við þann sem gaf byrjar og dregur eitt spil hjá honum. Ef hann fær aðra samstæðu leggur hann þau spil niður. Svona gengur þetta koll af kolli. Sá sem endar með spaðagosann/Svarta Pétur á hendi tapar spilinu og er Svarti Pétur.