Veiðimaður
Markmið: Læra að flokka spilin. Í gegnum spilið læra þau talnagildi. Safna slögum, læra að slagir eru fjögur spil. Í spilinu þjálfast þau einnig í athygli og eftirtekt.
Fjöldi leikmanna: Frá tveimur upp í fimm.
Aldur: 4+
Gögn: Spilastokkur
Lýsing - reglur: Spilið byrjar á því að setja öll spilin í eina hrúgu og hver og einn dregur eitt spil sá sem fær hæsta spilið byrjar (hægt að sleppa). Þau spil eru sett aftur í hrúguna og hver leikmaður dregur fimm spil. Tilgangur spilsins er að safna slögum en í einum slag eru fjögur spil af sömu tegund, t.d. fjórir fjarkar eða fjórar sjöur. Sá sem byrjar spyr hina leikmennina “á einhver [áttu]” ef einhver á áttu þá fær hann þær allar og fær að spyrja aftur. Hinsvegar ef enginn á áttu þá segja hinir spilararnir “nei, veiddu” og sá sem spurði dregur eitt spil og næsti gerir. Ef leikmaður klárar öll spil á hendi dregur hann eitt spil úr hrúgunni. Þegar allir slagirnir eru komnir niður er spilið búið. Þá telja allir sýna slagi og sá sem er með flesta slagi vinnur spilið.