Flokkun
Þegar börn læra að flokka þurfa þau að skoða eiginleika þeirra hluta sem flokka á. Kunnulegur efniviður auðveldar þeim flokkunina og eins hjálplegar spurningar frá kennurum:
- „Gætirðu flokkað þetta á annan hátt?“.
- „Hvað ef allir hlutirnir væru eins á litinn, hvernig myndirðu þá flokka þá?“.